Eins og fram kom í síðasta tölublaði Eyjafrétta var opinn kynningarfundur á þriðjudaginn í síðustu viku á vegum stórfyrirtækisins Merlin Entertainments, Vestmannaeyjabæjar og �?ekkingarseturs Vestmannaeyja um væntanlega uppbyggingu á griðastað hvíthvala í Vestmannaeyjum. Á fundinum fóru fulltrúar Merlin í gegnum verkefnið af nokkurri nákvæmni en eins og gefur að skilja er það gríðarlega stórt í sniðum. Eins og fram hefur komið í Eyjafréttum hefur tekið tíma að koma málinu í gegnum stjórnsýsluna og fékk blaðamaður þau svör frá Umhverfisstofnun í gær að verkefnið væri enn til umsagnar hjá sérfræðinefnd.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, opnaði umræddan fund með stuttri yfirferð á upphafi verkefnisins þar sem hann m.a. minntist á að honum hafi ekki litist á blikuna í fyrstu. Eftir hafa lagst í rannsóknarvinnu á umræddu fyrirtæki var honum og Páli Marvin Jónssyni, framkvæmdastjóra �?ekkingarseturs Vestmannaeyja, ljóst að um var að ræða virkilega spennandi verkefni. Næst var röðin komin að Merlin Entertainments en frá þeim voru komnir sjö fulltrúar til að kynna verkefnið nánar fyrir bæjarbúum. James Burleigh, aðal sendiherra Sea Life sem er keðja í eigu Merlin Entertainments, og félagar fóru yfir víðan völl í sinni yfirferð, kynntu sig og fyrirtækið sem óhætt er að segja að sé gríðarlega stórt á heimsvísu.
Í Eyjum næstu 30 – 40 árin
Hvalina eignuðust Merlin Entertainments eftir að hafa fest kaup í skemmtigarði í Shanghai árið 2012 og er talið að í dag séu hvalirnir um 12 ára gamlir. Lífslíkur hvíthvala úti í villti náttúru eru á bilinu 35-50 ár þannig að ef allt gengur eftir gætu hvalirnir þrír allt eins verið næstu 30-40 árin í Vestmannaeyjum. �?rátt fyrir að hvalirnir munu einungis vera þrír til að byrja með er gert ráð fyrir að hægt verði að hýsa allt að tíu hvali í einu. Vegna þess hve háðir hvalirnir eru mönnum mun þeim aldrei verða sleppt út í villta náttúru en hingað til hafa þeir einungis eytt þriðjungi ævi sinnar í sjó. Tilgangurinn með verkefninu er því einungis að veita hvölunum griðastað þar sem þeir geta sest í helgan stein í Klettsvík.
Í samtali við blaðamann eftir fundinn sögðu þau James Burleigh og Christine Dure-Smith frá Merlin Entertainments m.a. að tilgangurinn með verkefninu væri að veita hvölunum griðastað en ekki græða peninga og að engin fordæmi fyrir svona verkefni.
>> Nánar á bls. 10 í Eyjafréttum