Eyjamenn ekki fleiri í 30 ár
Opf 20250704 155558
Myndin er tekin á Goslokahátíðinni í ár. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

​Íbúum Vestmannaeyja fjölgaði um 47 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2024 til 1. júlí 2025, samkvæmt tölum sem eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Þann fyrsta júlí sl. stóð íbúafjöldinn í Vestmannaeyjum í 4.765.

Á vefsíðu Þjóðskrár eru gefnar upp tölur aftur til ársins 2019 en í lok þess árs voru íbúar í Eyjum alls 4.358 talsins og ári seinna voru þeir 4.330. Í kjölfarið fór íbúaþróunin að styrkjast og í desember 2021 var hún komin í 4.416 manns og 4.525 ári síðar. Í lok árs 2023 var talan komin í 4.631 og ári síðar stóð talan í 4.718.

Fara þarf aftur til ársins 1995 til að finna fleiri íbúa í Eyjum. Það ár voru skráðir í Eyjum 4.804. Metið er hins vegar frá 1971 þegar íbúar voru 5.231.

Nýjustu fréttir

Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri
Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.