Heimila lundaveiði 25. júlí - 15. ágúst
lundaveidi
Lundi veiddur í háf. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að heimila lundaveiði í Vestmannaeyjum. Veiði verður heimil dagana 25. júlí – 15. ágúst 2025. Ráðið telur afar mikilvægt að stýring veiða á lunda í Vestmannaeyjum taki á öllum stundum fyrst og fremst mið af viðkomu stofnsins. Samkvæmt lögum er veiðitímabil lunda að öllu jöfnu frá 1. júlí – 15. ágúst.

Reynsla síðastliðinna ára hefur sýnt að þeir fáu dagar sem lundaveiði er heimiluð eru nýttir til þess að viðhalda þeirri menningu sem fylgir veiðinni og úteyjarlífi almennt. Lundaveiðimenn hafa sýnt ábyrgð í veiðum sl. ár og veiðifélögin eru áfram hvött til að standa vörð um sitt nytjasvæði og upplýsi sína félagsmenn um að ganga fram af hófsemi við veiðarnar, segir í afgreiðslu ráðsins. Fyrir lágu umsagnir Náttúrustofu Suðurlands og Bjargveiðifélags Vestmannaeyja vegna lundaveiði 2025.

 

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.