Á eftir er hún kveikti ljós
Föstudagsgrínið þennan föstudaginn er að þessu sinni í bundnu máli. Ljóð eftir Selmu Hrönn Maríudóttur sem er líka dóttir Gylfa �?gissonar. �?að fjallar um uppfyllingu drauma eiginmanns með annarri konu en eiginkonunni, – sem hann hefði betur látið ógert, – eins og reyndar alltaf á við.
�?g leiður var á konunni og lamaður á sál,
er leið ég fann til huggunar, í dálk um einkamál.
�?ar kona var að óska eftir kæruleysis stund,
með karlmanni og fljótt hún vildi hafa þennan fund.
Nú auðvitað ég svaraði og síminn hringdi skjótt,
í símanum var rödd sem mælti �??Hittu mig í nótt”
�? – röddin var svo loðin – svo liggileg og mjúk,
hún lét mig alveg finna að hún væri í’mig sjúk.
�?g skal gjarnan leiða þig um lífsins paradís,
og leyfa þér að njóta þess að ég er vanadís.
�?g ferðast um á svaka flottum sendiferðabíl,
sérstaklega hentugum í ástarleikjapríl.
Svo nefndi hún mér stund og stað og spenningurinn jókst,
að standast kvöldsins löngu bið, naumlega mér tókst.
Er eiginkonan yfirgaf mig draumaheiminn í,
ég orkuhlaðinn hélt á vit, ævintýra á ný.
Inni í bílnum beið hún mín, við brugðum strax á leik,
í banastuði fljóðið var sem lyfti mér á kreik.
Á eftir er hún kveikti ljós, mér æðislega brá,
og endastakk mér út úr bílnum – Tengdamömmu frá.

Nýjustu fréttir

Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.