Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Barnameinningardagar.
Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Ljósmynd/aðsend.

Í kringum sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir víða á Suðurlandi þegar Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Þótt löng hefð sé fyrir hátíðarhöldum á þessum tíma verður nú sérstök áhersla lögð á barnamenningu, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt Suðurland.

Börnin í forgrunni sem skaparar og listamenn

Dagskráin í ár er bæði fjölbreytt og skemmtileg en þar fá börn og ungmenni tækifæri til að skapa, njóta og taka þátt í menningu á sínum eigin forsendum. Börnin sjálf verða hugmyndasmiðir, listamenn og virkir þátttakendur í viðburðum hátíðarinnar. Boðið verður upp á vinnustofur, sýningar, ljósmyndun, tónlist og ýmsa fjölskylduviðburði þar sem sköpun og gleði verða í forgrunni.

Samstarf alls landshlutans

Mikilvægur þáttur í Barnamenningardögunum er að efla þátttöku unga fólksins í menningarlífinu og stuðla að jöfnu aðgengi barna að menningu, algjörlega óháð því í hvaða sveitarfélagi þau eru búsett.

„Það er frábært að sjá hvernig allur landshlutinn tekur höndum saman fyrir börnin okkar,“ segir Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri hjá SASS. „Við hjá SASS höldum utan um yfirbygginguna og samstarfsnetið en algjörir lykilaðilar í þessari vinnu eru starfsfólk sveitarfélaganna sjálfra og aðilar þeim tengdum. Það er í þeirra höndum að skapa og skipuleggja dagskrána á hverjum stað. Þannig tryggjum við að hátíðin blómstri í hverri heimabyggð og að viðburðirnir endurspegli raunverulegt nærumhverfi barnanna.“

„Suðurland með mínum augum“

Sérstakt sameiginlegt verkefni Barnamenningardaganna að þessu sinni er ljósmyndaverkefnið „Suðurland með augum barna“. Þar eru börn hvött til að taka myndir af nærumhverfi sínu. Markmiðið með verkefninu er að veita samfélaginu dýrmæta innsýn inn í upplifunarheim barna á svæðinu og sjá umhverfið út frá þeirra sjónarhorni.

Fjölskyldur eru hvattar til að taka virkan þátt í gleðinni vikuna 22.–26. apríl og fylgjast vel með heimasíðum og miðlum sinna sveitarfélaga þar sem nánari dagskrá verður kynnt þegar nær dregur, segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.