Elís Þór æfði með A-landsliðinu

Elís Þór Aðalsteinsson, leikmaður ÍBV í handbolta, var kallaður inn á æfingu A-landsliðs karla í handbolta, sem fór fram í Safamýrinni fyrr í dag. Elís var meðal sex ungra og efnilegra leikmanna sem Snorri Steinn Gunnarsson kallaði til æfingarinnar. Hinir fimm voru Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson, leikmenn ÍR, Ingvar Dagur Gunnarsson, leikmaður […]
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn

Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning. Tipparinn var orðinn all verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á laugardagskvöldinu. „Ég áttaði mig á því […]
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar

Í kæru sem lögð hefur verið fram til kærunefndar útboðsmála vegna útboðs Vestmannaeyjabæjar um rekstur heilsuræktar eru ekki aðeins gerðar athugasemdir við hæfiskröfur útboðsins. Í kærunni eru einnig rakin atriði sem kærendur telja varpa ljósi á hvernig staðið hafi verið að rekstri heilsuræktarinnar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja á meðan málið hefur verið til meðferðar. Þar er […]
Lönduðu fullfermi í Grindavík

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á föstudaginn eftir að hafa verið innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Bæði skip voru með blandaðan afla, mest þorsk, ufsa, skarkola og ýsu. Rætt er við skipstjórana um veiðarnar á síðu Síldarvinnslunnar. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með túrinn. „Við […]
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan

Í kringum sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir víða á Suðurlandi þegar Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Þótt löng hefð sé fyrir hátíðarhöldum á þessum tíma verður nú sérstök áhersla lögð á barnamenningu, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt Suðurland. […]
Tanja er íþróttamaður mánaðarins

Íþróttamaður mánaðarins að þessu sinni er fótbolta- og handboltakonan Tanja Harðardóttir. Tanja er 15 ára gömul og spilar bæði handbolta og fótbolta með ÍBV. Hún hefur þrátt fyrir ungan aldur tekið þátt í leikjum með meistaraflokki í fótboltanum og spilar með 4. flokki í handbolta. Hún hefur æft með U-15 og U-16 ára landsliðum Íslands […]