Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Elís Þór Aðalsteinsson skoraði fimm mörk fyrir ÍBV. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Elís Þór Aðalsteinsson, leikmaður ÍBV í handbolta, var kallaður inn á æfingu A-landsliðs karla í handbolta, sem fór fram í Safamýrinni fyrr í dag. 

Elís var meðal sex ungra og efnilegra leikmanna sem Snorri Steinn Gunnarsson kallaði til æfingarinnar. Hinir fimm voru Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson, leikmenn ÍR, Ingvar Dagur Gunnarsson, leikmaður FH, Daníel Montoro, leikmaður Vals og Dagur Gautason, leikmaður KA. 

Ástæða þess var meðal annars sú að hluti landsliðshópsins var að keppa með sínum félagsliðum í gær og náðu ekki að komast í tæka tíð fyrir æfinguna. 

Elís Þór er hluti af æfingahóp u-20 ára landsliðsins ásamt Andra Erlingssyni, einnig úr röðum ÍBV.

Íslenska landsliðið mun mæta Svíþjóð í tveimur vináttuleikjum á Hlíðarenda og í Kaplakrika. Fyrri leikurinn fer fram á fimmtudagskvöldið og seinni á laugardag.

Nýjustu fréttir

Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.