Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Vann 17,4 milljónir á Enska getraunaseðilinn
Tipparinn hafði ástæðu til að fagna, þegar úrslit lágu fyrir.

Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning.

Tipparinn var orðinn all verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á laugardagskvöldinu.

„Ég áttaði mig á því að ég myndi fá 13 rétta ef leikur West Ham og Man. City færi jafntefli.  Ég var nú svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða því ég treysti mér ekki til að vera heima og horfa á leikinn. Við komum svo heim klukkan tíu um kvöldið og þá tékkaði ég fyrst á úrslitunum og sá að West Ham hafði náð jafntefli og tryggt mér 13 rétta“.

Íslenskar getraunir óska tipparanum til hamingju með vinninginn, segir í tilkynningu.

Nýjustu fréttir

Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti
Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.