Hefur 320.000 manna þjóð efni á að reka �?jóðleikhús? svo spyr bæjarstjórinn í Eyjum. Stutta svarið er eitt stórt JÁ. �?ví 320.000 manna þjóð sem hefur efni á því á erfiðum tímum að gefa kvótagreifum marga milljarða í afslátt á hóflegum veiðigjöldum, fella niður auðlegðarskatt á ríkasta fólk landsins, lækka skatta á ferðaþjónustuna og afþakka styrki frá Evrópusambandinu út frá ofstækisfullri þjóðernishyggju, hefur meira en vel efni á því. Svo einfalt er það. Og það ætti að duga sem röksemd án þess að þurfa að benda á það til viðbótar að ein manneskja í Eyjum heldur úti ógeðfelldum áróðursmiðli undir endurskrifarant ritstjóra sem hefur reynst fyrir þjóðina vera einn dýrkeyptasti maður Íslandssögunnar. Fyrst ein manneskja getur rekið slíkt apparat með mörg hundrað milljón króna tapi í áróðursskyni svo kvótagreifarnir komist undan því að greiða hóflegt gjald fyrir nýtingu á auðlindum þjóðarinnar þá ætti 320.000 manna þjóð hafa vel efni á þvi að geta rekið �?jóðleikhúsið. Og reyndar ætti kannski spurningin að vera miðað við Hrunið og allt það sem þjóðin þarf að borga, hvort 320.000 manna þjóð hafi efni á Sjálfstæðisflokknum og “fjármálasnilli” þeirra sem hefur iðulega endað með miklum afskriftum og þungum böggum á almenning. En maður getur varla annað en svo minnst þess að �?jóðleikhúsið hefur nú reynst Eyjaskeggjum ágætlega. �?egar féð streymdi þaðan til flokksbróðir bæjarstjórans og fremsta fulltrúa Eyjaskeggja. Og skreytti garðinn hans. Með steinum.