Að komast leiðar sinnar
Á stærstu ferðahelgum sumarsins hér í Eyjum búum við heimamenn – og raunar gestir okkar líka – við skert ferðafrelsi; umfram það sem við þurfum að þola venjulega. Þetta er ekkert nýtt – svona hefur þetta verið um langt skeið.
Allir þessir skemmtilegu viðburðir sumarsins – Pæjumót, Orkumót, Goslok og núna Íslandsmótið í golfi – hafa það í för með sér að fólk ræður ekki nema að litlu leyti för sinni til og frá Eyjum. Þetta gildir auðvitað sérstaklega um þá sem þurfa að hafa bílinn með á ferðlaginu; sem sagt Eyjamenn sjálfa. Og núna er að hefjast alversta vikan að þessu leyti – sjálf Þjóðhátíðarvikan.
Það gefur auga leið að það er ekki hægt að una við þetta til frambúðar. Og hér bjargar nýja ferjan engu. Það verður að búa þannig um hnútana að hægt sé að auka við flutningsgetuna á annasömustu tímum ársins. Í fyrra tókst að fá fólksflutningaferju, sem verið var að prófa í siglingum upp á Skaga, til að taka almesta kúfinn af eftirspurninni á Þjóðhátíðinni. Engu slíku er til að dreifa núna. Á undanförnum vikum hefur verið kannað hvort hægt sé að útvega eitthvert skip á Íslandi sem unnt er að nota í þessu skyni en niðurstaðan er neikvæð.
Framtíðarlausnin gæti falist í háhraða fólksflutningaferju sem gengi á móti bílaferjunni – og vonandi verður hægt að gera tilraunir með slíka ferju sem allra fyrst. Einnig þarf að taka flugið með í reikninginn þegar horft er til heildarlausna á samgöngum við Vestmannaeyjar. En við getum kannski leyft okkur að vera bjartsýn á að þetta horfi til betri vegar strax næsta sumar. Nú liggur fyrir að gamli Herjólfur verður áfram á Íslandi eftir að nýja ferjan kemur – og nú síðast var orðið við óskum okkar um að hann verði staðsettur í Vestmannaeyjahöfn en ekki á Akranesi eins og áformað var.
Við munum auðvitað gera þá sjálfsögðu kröfu að framvegis verði hægt að grípa til gamla Herjólfs til að anna álagstoppum á stærstu ferðahelgum ársins á meðan aðrar lausnir eru ekki fyrir hendi.
Gleðilega Þjóðhátíð!
Íris Róbertsdóttir
Bæjarstjóri

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.