Að lifa og njóta þess að vera eldri borgari
Í byrjun árs, 7. janúar 2018, minntist Félag eldri borgara í Vestmannaeyjum þess, að liðin voru 30 ár frá stofnun félagsins. Fyrsti formaður þess var Kristjana �?orfinnsdóttir og var hún mætt í afmælishófið. Keik og flott flutti hún stutta ræðu og minntist upphafsáranna í félaginu. �?á sögu alla þarf einhverntíma að segja enda ýmislegt á daga félagsins drifið.
Lengi vel hafði félagið aðstöðu í gamla pökkunarsal Ísfélagsins, sem Sigurður heitinn Einarsson afhenti félaginu til afnota.
Ný aðstaða hefur gjörbreytt starfi félagsins
Rétt fyrir áramótin 2016-2017 flutti félagið svo í nýja aðstöðu í Félagsheimilinu við Heiðarveg, sem nú heitir Kvika, – aðstaða Eldri borgarafélagsins á 3ju hæð fékk nafnið Vinaminni, eins og aðstaðan í Ísfélaginu hét. �?að var Vestmannaeyjabær sem innréttaði alla efstu hæð hússins og afhenti félaginu til frjálsra afnota. Við þennan flutning í Kviku varð gjörbreyting á starfsemi félagsins.
Gjafir á 30 ára afmæli félagsins
Afmælishófið var í Kviku og þangað kom Elliði Vignisson, bæjarstjóri færandi hendi, tilkynnti hann að Vestmannaeyjabær ætlaði að færa félaginu að gjöf í tilefni afmælisins, hátíðarfána á fæti, sem yrði afhentur á �?orrablóti félagsins síðar í mánuðinum. Hjónin Jón Sighvatsson og Ásta Halldórsdóttir færðu félaginu hljóðkerfi í afmælisgjöf. – �?á tilkynnti Bára Jóney Guðmundsdóttir, að slysavarnafélagið Eykyndill ætlaði að færa félaginu andvirði hjartastuðtækis, sem staðsett yrði í félagsaðstöðunni.
�?ór Vilhjálmsson nýr formaður
Aðalfundur félagsins var haldinn í félagsheimilinu Kviku 19. janúar sl. Á fundinum var kosin ný stjórn. Hana skipa: �?ór Ísfeld Vilhjálmsson, formaður, Einar Steingrímsson, varaformaður, Gísli Valtýsson gjaldkeri, Bára Jóney Guðmundsdóttir, ritari, Friðrikka Gústafsdóttir, meðstjórnandi, Eygló Ingólfsdóttir, vararitari og Guðmunda Hjörleifsdóttir, varagjaldkeri.
Líflegt félagsstarf
Árlegt þorrablót Félags eldri borgara var svo haldið í Alþýðuhúsinu 27. janúar. Að venju var margt um manninn, skemmtiatriði í heimsklassa og dansað fram á næsta dag, eða næstum því.
Félagsstarf eldri borgara er líflegt. Hálfsmánaðarlega eru haldnar spilavistir í Kviku, sönghópar, bæði karla og kvenna æfa vikulega í húsnæðinu undir stjórn �?lafs M. Aðalsteinssonar. Haustfagnaður í upphafi vetrar og vorfagnaður í vetrarlok marka upphaf og endi hvers starfsárs.
Hvert sumar og hvert haust er farið í ferðalag, ýmist innanlands eða utanlands. Alla virka daga hittist hópur félagsfólks í Kviku og spilar mini golf, eða pútt.
�?á er félagsfólki boðið uppá vikulega leikfimi og sundleikfimi í Íþróttahúsinu undir stjórn íþróttakennara.
Flesta mánudaga yfir vetrartímann eru ýmsar uppákomur í Kviku á vegum Vestmannaeyjabæjar, þar sem dægurmálin eru á dagskrá, fyrirlestrar, fróðleikur, gaman og á miðvikudögum er opinn föndurtími með leiðsögn.
Af þessari upptalningu, sem engan veginn er þó tæmandi, má sjá að félagsstarf eldri borgara í Eyjum er blómlegt og öllum eldri borgurum opið til þátttöku.
Lífið heldur áfram á breyttum forsendum
�?að kallar á breytt lífsmynstur að hætta á vinnumarkaði eftir áratuga starf. Sumum finnst eins og það séu alltaf sunnudagar. En lífið heldur auðvitað áfram en á breyttum forsendum. Hjá mörgum verða barnabörnin stærri hluti af tilverunni eftir starfslok. Ýmsar tómstundir sem áður var ekki tími til að sinna fá aukið vægi. – Sumir eru vel undir starfslokin búnir, aðrir ekki eins og gengur. �?etta er því ekki einsleitur hópur, heldur ótrúlega litríkur, flottur, og orkumikill og margir enn í fullu fjöri og tilbúnir í ný verkefni. Eða eins og einhver sagði: �?að ekki amalegt að vera eldri borgari, nú getur maður djammað yfir hábjartan daginn.
Fólk leggst ekki sjálfkrafa í kör við það að mæta ekki lengur til vinnu að morgni; síður en svo. �?á er einmitt tíminn til að lifa og njóta, og gott að hafa fastan lið í tilverunni eins og Félag eldri borgara er, þar sem maður er manns gaman og fjölbreytt starfsemi í boði. �?að hefur verið raunin hér í Eyjum, því talsverður hópur �??yngra�?? fólks hefur gengið í félagið að undanförnu og látið að sér kveða.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.