Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Sigurjón Þorkelsson er margreyndur og er þetta í átjánda skipti sem hann verður skákmeistari Vestmannaeyja á síðustu 40 árum
Arnar Sigurmundsson, sem endaði í þriðja sæti. Sigurjón sem sigraði og Auðunn sem varð í öðru sæti. Mynd/aðsend.

Eins og áður hefur komið fram í fréttum urðu Sigurjón Þorkelsson og Auðunn Haraldsson jafnir og efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026.

Tefldu þeir til úrslita í þriggja skáka einvígi sem fram fór í Skákheimili TV við Heiðarveg í dag. Tímamörk voru 15 mínútur á hvorn keppanda og 5 sekúndur til viðbótar á hvern leik. Hver skák tók um 30 mínútur.

Úrslit urðu þau að Sigurjón tryggði sér sigurinn með tveimur vinningum og þurfti því ekki að tefla þriðju skákina. Sigurjón Þorkelsson er margreyndur og er þetta í átjánda skipti sem hann verður skákmeistari Vestmannaeyja á síðustu 40 árum. Auðunn er aftur á móti að tefla í annað sinn á Skákþingi Vestmannaeyja og er árangur hans því mjög góður.

Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja á skírdag

Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja 2026 fer fram á skírdag, fimmtudaginn 2. apríl kl. 13:00 í Skákheimili TV við Heiðarveg. Tímamörk í hraðskákinni eru 5 mínútur á keppanda í hverri skák og 5 sekúndur á leik. Hver umferð tekur um 10–12 mínútur.

Reikna má með að mótið taki 2,5–3 klukkustundir og ljúki um kl. 16:00 á skírdag. Skákáhugamenn eru hvattir til að mæta, segir í tilkynningu frá TV.

Nýjustu fréttir

Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Kjarnaborun hafin í Eyjum
Höfum áhrif – Framtíðin er í okkar höndum
Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind
Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum
HSU: Gervigreind styður við myndgreiningu og bráðaþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.