Aðstaða fyrir 140 m ekjufraktskip
Nýr kantur verður þannig að ekjufraktskip eða Róróskip geta legið við Kleifarnar

„Þeir frá Krönum ehf. eru að vinna fyrir okkur að endurbyggingu Gjábakkakants eftir að í ljós kom að þilið er ónýtt,“ sagði Dóra Björk Gunnarsdóttir, hafnarstjóri Vestmannaeyja um framkvæmdir í norðurhöfninni.

Er verið að reka niður stálþilið en undanfarið hafa starfsmenn Krana keyrt efni með bryggjukantinum. „Nýr kantur verður þannig að ekjufraktskip eða Róróskip geta legið við Kleifarnar og með skutinn við Gjábakkann þar sem verður rúmlega 20 metra breiður skái. Skáinn verður svipaður og er í Þorlákshöfn þar sem hægt sé að aka frá borði og um borð,“ sagði Dóra Björk.

Þetta er mikil framkvæmd og er kostnaður fyrsta hluta áætlaður um 300 milljónir króna. „Við áætlum að ljúka verkinu sumarið 2026 en við stefnum að því að geta tekið á móti 140 metra ekjuskipum núna í nóvember. Verður þetta góð viðbót í þjónustu hafnarinnar og  í takt við vaxandi umsvif í Vestmannaeyjum,“ sagði Dóra Björk.

Nýjustu fréttir

Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.