Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Áhöfnin á Heimaey á loðnumiðunum í síðustu viku.

Vel heppnaðri loðnuvertíð lauk í síðustu viku og náðu bæði Ísfélag og Vinnslustöð að klára kvótann.

„Við erum búin að veiða allar okkar heimildir í loðnu og kláruðum vinnslu um helgina,“ sagði Sindri Viðarsson sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar þegar rætt var við hann. „Við erum virkilega ánægð með hvernig vertíðin hefur gengið og framleiðslan hefur verið í takt við áætlanir,“ sagði Sindri.

Samtals ráða Ísfélag og Vinnslustöð yfir þriðjungi heildarkvótans og er Ísfélagið með 30.000 tonn og Vinnslustöðin 20.000 tonn. Stærsti hlutinn var unninn til manneldis, loðnan fryst og hrognin unnin á lokasprettinum. Forsíðuna prýða Eiríkur Arnórsson og Albert Sævarsson, skipverjar á Heimaey VE.

Óskar Pétur, ljósmyndari Eyjafrétta tók myndirnar í túr með Heimaey.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.