Skýr skilaboð frá flokksmönnum 

Eyþór Harðarson hafnaði í efsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum með 715 atkvæði, eða tæp 63% gildra atkvæða. Hann segir niðurstöðuna skýr skilaboð frá flokksmönnum og horfir nú til sveitarstjórnarkosninganna í vor.  Aðspurður um hvort hann sé ánægður með niðurstöðurnar í prófkjörinu segir Eyþór:  „Ég get ekki annað en verið ánægður með niðurstöðuna hvað mig varðar […]

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?

Í litlu samfélagi eins og Vestmannaeyjum skiptir máli hvernig ákvarðanir eru teknar, ekki bara hvaða ákvarðanir eru teknar. Traustið sem samfélagið byggir á verður ekki til af sjálfu sér – það skapast með gagnsæi, samráði og sanngirni. Þess vegna er lykilatriði að halda sig við grunngildi (prinsip) í allri ákvarðanatöku, ekki síst hjá þeim sem […]

Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip

Samningur Vegagerðarinnar um sanddælingu í Landeyjahöfn hefur verið gagnrýndur allt frá opnun hafnarinnar árið 2010. Undantekning voru árin 2015 til 2017, þegar belgíska fyrirtækið Jan de Nul bauð lægst og sá um verkið. Tilboð þeirra nam um 588 milljónum króna fyrir dælingu á 750 þúsund rúmmetrum af sandi. Önnur ár hefur Björgun ehf. annast dælinguna […]

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 

Arndís María Kjartansdóttir er nýr oddviti Eyjalistans. Hún er menntaður framhaldsskólakennari, er löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali og stundar jafnframt meistaranám í jákvæðri sálfræði. Eyjafréttir ræddu við Arndísi um ákvörðun hennar að stíga fram í oddvitasætið, helstu áherslur í bæjarmálum og hvernig reynsla hennar úr menntakerfinu og fasteignageiranum gæti nýst í sveitarstjórnarmálum.  Arndís eða Dísa eins og hún […]

Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal

Það er ekki annað að sjá en að vel fari um dæluskipið Álfsnes á Bíldudal við Arnarfjörð þessa dagana. Skipið er í eigu Björgunar sem er með samning við Vegagerðina um sanddælingu í Landeyjahöfn. Álfsnesið var boðið fram sem skip sem átti að uppfylla tilskyldar kröfur, en útkoman hefur því miður verið mikil vonbrigði. Frá […]

Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 

Trausti Hjaltason, sem hafnaði í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, segir þátttöku flokksmanna í prófkjörinu hafa verið með eindæmum góða. Um 1.200 manns greiddu atkvæði í prófkjörinu, sem hann segir sýna bæði mikinn áhuga og sterkt lýðræðislegt samtal innan flokksins.  Öflugur hópur   „Ég er fyrst og fremst ótrúlega ánægður með þátttöku flokksmanna í […]

Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri

Hafrannsóknastofnun leggur til að humarveiðar verði áfram bannaðar árið 2026, en að ráðist verði í sérstakar könnunarveiðar til að afla betri gagna um ástand stofnsins. Tillagan byggir á varúðarsjónarmiðum og óvissu í mælingum, þar sem misræmi er á milli vísitölu humarholna og niðurstaðna úr togleiðöngrum. Með könnunarveiðum er ætlunin að fá skýrari mynd af aflabrögðum […]

Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið

Vel heppnaðri loðnuvertíð lauk í síðustu viku og náðu bæði Ísfélag og Vinnslustöð að klára kvótann. „Við erum búin að veiða allar okkar heimildir í loðnu og kláruðum vinnslu um helgina,“ sagði Sindri Viðarsson sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar þegar rætt var við hann. „Við erum virkilega ánægð með hvernig vertíðin hefur gengið og framleiðslan hefur verið […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.