Nú er baráttan um Íslandsmeistaratitilinn orðin fjögurra liða keppni. KR og Breiðablik eru nú jöfn í öðru sæti, tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í því efsta með 33 stig. Skammt undan eru svo sjálfir Íslandsmeistararnir í FH með 29 stig. KR og ÍBV hafa það í hendi sér hvort þau vinna Íslandsmótið eða ekki, báðum liðum dugar að vinna sína leiki til að hampa titlinum en Breiðablik og FH verða að treysta á að hin liðin tapi stigum. Á morgun, sunnudag sækja Eyjamenn Fylki heim í Árbæinn en á mánudaginn mætast KR og FH en KR-ingar eiga þrjá heimaleiki eftir á meðan hin þrjú liðin eiga aðeins tvo heimaleiki