ÍBV stelpurnar rúlluðu yfir Fylki
Eyjakonur eru komnar upp í Bestu deildina. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV tók á móti Fylki í eina leik kvöldsins í 9. umferð Lengjudeildar kvenna. Leikurinn fór fram á Þórsvelli og voru Eyjastelpur með mikla yfirburði í leiknum. Allison Patricia Clark skoraði fyrsta mark leiksins á 12. mínútu með góðum skalla eftir hornspyrnu Olgu Sevcovu. Aðeins þremur mínútum síðar bætti hún svo við öðru marki aftur eftir sendingu frá Olgu Sevcovu sem hafði átt frábæran sprett upp völlinn. Olga lagði svo boltann fyrir Clark og eftirleikurinn auðveldur fyrir hana.  Eyjakonur voru í miklu stuði í fyrri hálfleik og bættu við tveimur mörkum áður en flautað var til hálfleiks. Viktorija Zaicikova skoraði  á 42. mínútu eftir fyrirgjöf frá Allison Lowrey og Lowrey skoraði svo fjórða markið þremur mínútum síðar. 

Eyjakonur héldu áfram að sækja að marki Fylkis í seinni hálfleik og á 83. mínútu kom loks fimmta markið eftir vel útfærða aukaspyrnu en það var Sandra Voitane sem tók spyrnuna. Hún renndi boltanum á Kristínu Klöru Óskarsdóttir sem átti góða fyrirgjöf og Helena Hekla Hlynsdóttir kláraði af miklu öryggi. Frábær leikur hjá stelpunum sem eru á mikilli siglingu. 

Eftir leikinn er ÍBV á toppi Lengjudeildarinnar með 22. stig en Fylkir er í fallbaráttunni með 6.stig.

Stelpurnar mæta næst Grindavík/Njarðvík föstudaginn 4. júlí kl. 18:00. Ekki er komið á hreint hvort leikurinn fari fram á Þórsvelli eða Hásteinsvelli. 

Nýjustu fréttir

Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.