Goslokahátíð Vestmannaeyjabæjar verður haldin hátíðleg um næstu helgi með fjölbreyttri skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna. Að hátíðinni er enginn aðgangseyrir og dagskrá helgarinnar bæjarbúum og gestum að kostnaðarlausu. Goslokanefnd hefur lagt áherslu á að bjóða ávallt upp á metnaðarfulla barnadagskrá þessa helgi og verður engin undantekning gerð á þetta árið. Merki goslokahátíðar verður til sölu fyrir þessa hátíð og munu sölubörn ganga í hús auk þess sem merkin verða til sölu í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Eymundsson og á byggðasafninu.