Áfangastaðaáætlun DMP (e.Destination Management Plan) er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samþættingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þar með talið:
· þarfir gesta og heimamanna
· þarfir fyrirtækja og umhverfis.

Með Áfangastaðaáætlun Suðurlands er komin heilstæð áætlun fyrir ferðaþjónustuna á Suðurlandi sem tekur tilliti til ferðaþjónustu, náttúru, menningarminja og samfélags. Áfangastaðaáætlun þessi var unnin frá apríl 2017 – maí 2018 í samstarfi við hagaðila á Suðurlandi.
Í markaðsgreiningu sem Markaðsstofa Suðurlands lét gera árið 2016 var dregin fram þrískipting svæða á Suðurlandi; Vestursvæði, Katla jarðvangur & Vestmannaeyjar og Ríki Vatnajökuls og var notast við þá svæðaskiptingu í áfangastaðaáætluninni. Vestursvæðið er samansett af sveitarfélögunum innan Árnessýslu ásamt Ásahreppi og Rangárþingi ytra. Katla jarðvangur & Vestmannaeyjar eru Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur og Vestmannaeyjar. Ríki Vatnajökuls er Sveitarfélagið Hornafjörður. Gerð var ein áfangastaðaáætlun fyrir Suðurland í heild sinni og þrjár aðgerðaráætlanir, ein fyrir hvert svæði.

Verkefnið var fjármagnað af Ferðamálastofu og er eitt af forgangsverkefnum Vegvísis fyrir ferðaþjónustuna, sem birtur var í lok árs 2015.
Áfangastaðaáætlun Suðurlands verður kynnt á fundi hjá Ferðamálastofu á Hótel Söguásamt áfangastaðaáætlunum annara landshluta fimmtudaginn 15. nóv kl 13.00. Fundinum verður einnig streymt á netinu.
Skýrsluna má finna á heimasíðunni www.south.is/is/dmp
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.