Áhorfendur leyfðir á íþróttaviðburðum

Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns samkvæmt nýjum reglum um samkomutakmarkanir sem taka gildi 24. febrúar. Heimilt verður að hafa að hámarki 200 viðskiptavini í verslunum, á söfnum, í kirkjum og á tilteknum viðburðum. Sund- og baðstöðum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Sama máli gegnir um heilsu- og líkamsræktarstöðvar en þar er jafnframt óheimilt að hafa fleiri en 50 manns í rými.  Á íþrótta keppnum verður nú heimilt að hafa áhorfendur. Þetta er megin inntak tilslakana á samkomutakmörkunum sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Með reglugerð heilbrigðisráðherra sem tók gildi 8. febrúar síðastliðinn voru gerðar varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum og átti reglugerðin að gilda til 3. mars. Í ljósi góðar stöðu á faraldrinum innanlands telur sóttvarnalæknir óhætt að gera enn frekari tilslakanir nú þegar, enda hafa aðgerðir á landamærum verið hertar til að draga enn frekar úr líkum á því að smit berist frá útlöndum. Fá smit hafa greinst innanlands undanfarið og þá hjá fólki sem þegar var í sóttkví. Ekki hefur greinst smit utan sóttkvíar síðan 1. febrúar. Sóttvarnalæknir segir ekki hægt að fullyrða að landið sé „veirufrítt“ og brýnir því fyrir fólki að vera áfram varkárt og gæta að sóttvörnum.

Reglur um grímunotkun verða óbreyttar og áfram verður 2 metra nándarregla meginviðmið en þó með ákveðnum undantekningum eins og að neðan greinir.

Fjöldatakmarkanir fara úr 20 manns í 50 en með undantekningum:

Söfn og verslanir: Viðskiptavinir mega vera allt að 200 í stað 150 áður, að uppfylltum skilyrðum reglugerðarinnar um fermetrafjölda. Áfram gilda 2 metra nálægðarmörk og grímuskylda.

Viðburðir þar sem gestir sitja: Allt að 200 manns mega vera viðstaddir athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga, sviðslistar- menningar- og íþróttaviðburði, ráðstefnur, fyrirlestra og sambærilega viðburði að uppfylltum öllum eftirtöldum skilyrðum.

  • Heimiluð nándarmörk milli ótengdra aðila eru nú 1 metri, að uppfylltum skilyrðum.
  • Gestir mega ekki sitja andspænis hver öðrum nema meira en tveir metrar séu á milli þeirra.
  • Þátttaka allra gesta skal skráð þar sem fram kemur nafn, kennitala og símanúmer.
  • Allir skulu nota andlitsgrímu og tryggt að fjarlægð milli ótengdra aðila sé meiri en 1 metri.
  • Heimilt er að hafa hlé á sýningum en áfengisveitingar og áfengissala á viðburðum er óheimil.
  • Koma skal í veg fyrir hópamyndanir, jafnt fyrir og eftir viðburð og í hléi.

Ath! Ef ekki er hægt að uppfylla eitthvert framantalinna skilyrða gildir reglan um 50 manna hámarksfjölda á viðburðinum.

Áhorfendur á íþróttaviðburðum: Heimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum. Áhorfendur mega vera allt að 200 manns að því gefnu að hægt sé að uppfylla öll skilyrði hér að framan um viðburði þar sem gestir sitja. Ef áhorfendur eru standandi gildir regla um 50 manna hámarksfjölda.

Sund- og baðstaðir: Gestir mega vera 75% af leyfilegum hámarksfjölda.

Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Gestir mega vera 75% af leyfilegum hámarksfjölda. Í  hverju rými mega nú að hámarki vera 50 manns.

Skíðasvæði: Heimilt er að taka á móti 75% af hámarksfjölda af móttökugetu hvers svæðis.

Veitingastaðir þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar: Leyfilegur hámarksfjöldi í rými verður 50 manns. Heimilt er að taka á móti nýjum viðskiptavinum til kl. 22.00 en þeir skulu allir hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23.00.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.