Alex Freyr sá besti í Eyjum að mati Fótbolta.net
ÍBV lið karla í fótbolta hefur staðist væntingar og vel það. Láki hefur sannað sig sem einn besti þjálfari Bestu deildarinnar. Fagnaðarefni að hann heldur áfram. Fyrirliðinn Alex Freyr hefur líkað staðið fyrir sínu sem fyrirliði. Mynd Sigfús Gunnar.

Alex Freyr Hilmarsson hefur að mati Fótbolta.net verið besti leikmaður ÍBV á þessu tímabili. Hann var valinn það í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag. Hornfirðingurinn hefur leikið virkilega vel með ÍBV og farið fyrir sínu liði, enda fyrirliði.

Fótbolti.net ræddi við Oliver Heiðarsson um Alex Frey og hvernig sé að spila með honum. „Það er fyrst og fremst heiður. Ég og hann náum vel saman innan og utan vallar. Þetta er örugglega ljúfasti drengur sem ég hef kynnst á ferlinum,“ segir Oliver við fotbolti.net. „Það hefur verið geðveikt að spila með honum í þessi þrjú tímabil. Bæði karakterinn sem hann sýnir inn á vellinum og hvernig hann er heilt yfir. Hann er náttúrulega ógeðslega góður í fótbolta, hefur lagt upp mörk á mig og ég veit ekki hvort ég hafi náð að borga þann greiða til baka.”

„Hann finnur oft sendingar sem ég hefði ekki séð í augnablikinu. Það er líka mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa hann í liðinu, við erum mjög fljótir fram á við, en við getum ekki farið á fulla ferð alltaf, hann er mjög góður að skynja tímapunktanna hvenær sé gott að róa leikinn niður og halda aðeins í boltann,” segir Oliver.

Nýjustu fréttir

Sigla síðdegis í Landeyjahöfn
Prófkjör leið til að sameina flokkinn á ný
Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru
Gul viðvörun: Norðaustan hríð
ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.