Samtals 60 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði á næstu árum:
Í dag eru 58 íbúðir í byggingu í Vestmannaeyjum, 38 í fjölbýli, tíu í rað- og parhúsum og tíu í einbýli. Fimmtán íbúðir hafa verið teknar í notkun það sem af er ári og um 50 eru í umsóknarferli. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Smára Benónýssonar, byggingafulltrúa Vestmannaeyjabæjar.
Fyrirtæki í bænum eru líka í miklum framkvæmdum og þar er laxeldisfyrirtækið Laxey stórtækast. Í botni Friðarhafnar er í byggingu 13.000 fm seiðaeldisstöð þar sem áætlað er að seiðaeldisstöðin sjálf verði á um 8500 fm. Framkvæmdir Laxeyjar í Viðlagafjöru eru einnig komnar í gang. Á næstu árum má gera ráð fyrir að byggðir verða rúmlega 40.000 fm í kerjum og atvinnuhúsnæði tengt starfseminni.
Vinnslustöðin er komin í gang með endurbyggingu mannvirkja við fiskimjölsverksmiðju félagsins. Um er að ræða niðurrif á þró og uppbyggingu á sama svæði þar sem verða vinnslusalur, hreinsistöð og lager. Samtals telur framkvæmdin um 5000 nýja fermetra í atvinnuhúsnæði. Í byrjun árs tók Ísfélagið í notkun 2000 fm hrognavinnsluhús á lóð fyrirtækisins við Strandveg 14, FES, fiskimjölsverksmiðju.
Á lóðinni Kleifar 3A, inni á Eiði hefur RibSafari byggt 810 fm atvinnu- og geymsluhúsnæði. Gert er ráð fyrir að mannvirkið geti hýst alla báta sem fyrirtækið gerir út.
Þá er að rísa bílaþvottastöð við Tvistinn við Faxastíg og myndarlegt iðnaðarhúss við Flatir 16.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst