Uppsjávarskipið Álsey VE 2 sem er í eigu Ísfélagsins er til sölu. Þetta staðfesti Eyþór Harðarson útgerðarstjóri Ísfélagsins í samtali við Eyjafréttir.
Álsey er uppsjávarskip sem var smíðað í Flekkefjord í Noregi árið 1987 og sagði Eyþór að í ljósi þeirrar stöðu sem væri á loðnunni hafi verið ákveðið að selja skipið. „Í ljósi þeirra stöðu sem við erum í varðandi loðnu og önnur verkefni þá var ákveðið að segja áhöfninni upp og bjóða skipið til sölu,“ sagði Eyþór.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.