Arfaslakt gegn FH
Eyjamenn spiluðu mjög illa gegn FH í kvöld þegar liðin áttust við í Olísdeild karla í Eyjum. Enda fór það svo að FH-ingar unnu fimm marka sigur, 21:26 og verður sigurinn að teljast verðskuldaður, enda voru gestirnir yfir þrjá fjórðu hluta leiksins. Staðan í hálfleik var 10:13.
Sóknarleikur ÍBV var vægast sagt skelfilegur enda þykir það ekki gott að skora aðeins 21 mark á heimavelli. Leikmenn gerðu hvað eftir annað klaufaleg mistök í sókninni, misstu boltann og köstuðu honum jafnvel út af. �?etta var fyrsti leikur ÍBV í deildinni í heila 19 daga og ekki annað að sjá en að leikmenn séu vel ryðgaðir eftir pásuna, jafnvel haustbragur á liðinu eins og Gunnar Magnússon, þjálfari liðsins sagði í samtali við blaðamann eftir leikinn.
Framan af fyrri hálfleiks var jafnræði með liðunum en um miðjan hálfleikinn breyttu FH-ingar stöðunni úr 6:5 í 6:10. Eftir það sáu Eyjamenn varla til sólar. Smá lífsmark var með þeim í síðari hálfleik þegar þeir minnkuðu muninn niður í 15:16 en lengra komust þeir ekki og Hafnfirðingar juku muninn hægt og örugglega aftur. Leikmenn ÍBV vilja sjálfsagt gleyma þessum leik sem fyrst. Eini sem getur borið höfuðið þokkalega hátt eftir hann, er Kolbeinn Aron Arnarson sem varði 17 skot í markinu. Margir eru á því að markvarslan sé veikasti hlekkur Eyjaliðsins og því sorglegt að tapa jafn illa þegar markvarslan er meira en í góðu lagi.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 5, Hákon Daði Styrmisson 3, Einar Sverrisson 3, Grétar �?ór Eyþórsson 3, Svavar Kári Grétarsson 2, Andri Heimir Friðriksson 2, Magnús Stefánsson 1, Bergvin Haraldsson 1, Guðni Ingvarsson 1.
Varin skot: Kolbeinn Arnarson 17/1, Henrik Eidsvåg 2.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.