Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
default
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson.

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Eyjum hefur verið boðað til fundar sunnudaginn 29. mars nk. þar sem tillaga kjörnefndar um framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 16. maí nk. verður lögð fram til samþykktar hjá fulltrúaráðinu.

Prófkjör var haldið 13. mars sl. þar sem 1178 kjósendur tóku þátt í að velja frambjóðendur í 8 efstu sæti listans. Kjörnefnd hafði síðan það hlutverk að vinna með þær niðurstöður sem komu úr prófkjörinu til að stilla upp lista og mun á fundinum leggja fram tillögu að fullskipuðum 18 manna framboðslista.

Í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna, sitja hátt í 100 fulltrúaráðsmeðlimir sem kjörnir eru í ráðið á aðalfundum sjáfstæðisfélaganna. Þeir munu á fundinum  ræða tillögu kjörnefndar og samþykkja endanlegan framboðslista.

Fulltrúaráðsfundurinn á sunnudaginn markar upphaf kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor og eru fulltrúar í fulltrúaráðinu eru hvattir til að sýna samstöðu og fjölmenna á fundinn, segir í tilkynningu frá stjórn fulltrúaráðsins.

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.