Arnór Eyvar �?lafsson, varnarmaðurinn sterki er genginn í raðir Fjölnis í Grafarvogi. �?etta kemur fram á
Fótbolti.net en Arnór Eyvar hefur síðustu ár verið einn af lykilmönnum í liði ÍBV og vaxið mjög sem bakvörður. Arnór lék reyndar ekkert með ÍBV síðasta sumar vegna meiðsla. �?á kemur einnig fram á Fótbolti.net að ÍBV sé að skoða tilboð í �?órarinn Inga Valdimarsson en samkvæmt heimildum vefsins er tilboðið frá öðru liði í Pepsídeildinni. �?órarinn Ingi hafi verið orðaður við FH, KR og Stjörnuna en sjálfur hefur hann lýst því yfir að hann vilji komast aftur erlendis í atvinnumennsku.
�?á hefur ÍBV gert þrjú tilboð í Framarann Aron Bjarnason, sem er samningsbundinn Fram en tilboðunum hefur verið hafnað.