Ásdís Loftsdóttir nýr formaður
Aðalfundur Kvenfélagsins Líknar var haldinn 2. febrúar sl. Ágústa Hulda Árnadóttir lét af störfum og tók Ásdís Loftsdóttir við sæti hennar. Í nýrri stjórn eru Ásdís Loftsdóttir, formaður; Birgitta Karen Guðjónsdóttir, varaformaður; Edda �?lafsdóttir, gjaldkeri; Kristín Gunnarsdóttir, vara gjaldkeri; Hrefna Valdís Guðmundsdóttir, ritari; Helga Björg Garðarsdóttir, vararitari og Guðný Bogadóttir meðstjórnandi.
Í kvenfélaginu Líkn eru skráðar 117 félagskonur. Allar þessar konur vinna saman að hinum ýmsu störfum félagsins, eftir bestu getu og hentugleikum hverrar fyrir sig. Á fundum fáum við til okkar fyrirlesara eða kynningar á ýmsum störfum, og stundum höldum við námskeið til að efla okkar konur. Einnig gerum við okkur glaðan dag þar má nefna óvissuferðir og skemmtikvöld fyrir félagskonurnar. �?að gefur mikið að vera í félagi eins og Kvenfélaginu Líkn, verkefnin eru margbreytileg og flestar konur geta fundið eitthvað við sitt hæfi, einnig myndast góður vinskapur milli félagskvenna. Viljum við hvetja konur til að ganga til liðs við okkur í Líkn, allar konur eru velkomnar og tökum við vel á móti ykkur.
Á síðasta starfsári ákvað félagið að stofna til söfnunar á tölvusneiðmyndatæki til Heilbrigðisstofnunarinnar okkar. Standa málin þannig í dag að tækið er væntanlegt til okkar á næstu vikum. Hefur þetta gengið vonum framar. Má þar þakka frábærum stuðningi frá fyrirtækjum, félagasamtökum og okkar frábæru bæjarbúum. Viljum við nota þetta tækifæri og þakka bæjarbúum frábæran stuðning og velvild við félagið í gegnum árin, því án ykkar værum við lítils megnugar.
Bestu þakkir
Ágætu bæjarbúar, okkar bestu þakkir fyrir samvinnuna sl. ár. �?skum ykkur alls góðs og guðs blessunar í framtíðinni.
Kvenfélagið Líkn var stofnað 14. febrúar 1909. Félagið er til húsa að Faxastíg 35.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.