Átthagakvöld sem breyttist í þjóðhátíð
Laugardaginn 8. febrúar verður haldið Eyjakvöld á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi þar sem margar af þekktum hljómsveitum frá Vestmannaeyjum koma fram eins og Logar, Dans á Rósum og Bjartmar Guðlaugsson. Logar fagna 50 ára starfsafmæli á þessu ári og er þetta í eitt af örfáum skiptum á árinu sem sveitin kemur fram.
�??�?essi kvöld hafa verið stórkostleg og aldeilis stækkað frá ári til árs,�?? segir Viktor Ragnarsson bassaleikari í Dans á rósum. �??Við höfum verið virkir þátttakendur í þessum kvöldum í vel á annan áratug og þau verða alltaf stærri og meira lagt í dagskrána og umgjörðina með hverju árinu og í raun verða þessi kvöld alltaf einskonar þjóðhátíð á fastalandinu þar sem kynslóðir á öllum aldri skemmta sér saman enda reynum við að höfða til eins margra og frekast er kostur. Við ætlum að byrja kvöldið snemma á söngdagskrá með lögum úr ýmsum áttum, þjóhátíðarlög, og klassísk Eyjalög með nokkrum frábærum söngvurum, enda á ég von á að allar raddir verði vel heitar eftir tónleikana í Hörpu sem fram fara fyrr um kvöldið, síðan tekur við Eyjaball fram á morgun. Við ætlum að bjóða fólki upp á sætaferðir eftir Hörputónleikana og hvetjum fólk að tryggja sér miða í forsölu tímanlega, því sá miði gildir sem frítt far frá Hörpu og á SPOT og í sérstakan forsöluinngang svo það þarf enginn að bíða eftir því að komast inn segir Viktor að lokum. Forsala miða er á SPOT í Kópavogi og fyrir þá sem eru í Eyjum á Hárstofu Viktors.�??

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.