Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir landið allt nk. fimmtudag milli kl. 05:00 og 18:00, vegna suðaustan hríðarbyls.
Í viðvörunarorðum segir: Suðaustan 15-23 m/s með snjókomu og hríð, fyrst suðvestantil. Suðvestan 8-13 og skúrir suðvestantil um hádegi. Búast má við talsverðri eða mikilli snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni. Samgöngutruflanir eru líklegar, lokanir á vegum og tafir í flugsamgöngum. Fólki er bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám.
Norðaustan 5-13 m/s og snjókoma austantil undir hádegi. Hiti um og undir frostmarki. Norðaustan og austan 3-10 á morgun og bjartviðri, en bætir í vind með éljum vestast annað kvöld. Kólnar heldur, en mildara syðst.
Spá gerð: 24.03.2026 09:46. Gildir til: 26.03.2026 00:00.
Á fimmtudag:
Suðaustan 18-28 m/s og snjókoma eða slydda, hvassast og talsverð ofankoma suðvestan- og vestantil. Hlýnar í veðri. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu sunnan- og vestanlands eftir hádegi, sunnan 8-15 og slydduél síðdegis, en suðaustan hvassviðri og snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi fram á kvöld.
Á föstudag:
Gengur í norðan 13-20 m/s á vestanverðu landinu með snjókomu. Hægari vindur og úrkomumuminna á Norðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld. Hiti nálægt frostmarki.
Á laugardag:
Minnkandi norðvestanátt, styttir upp og kólnar. Vaxandi suðaustanátt sunnan- og vestanlands síðdegis með snjókomu eða slyddu.
Á sunnudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt og él, en talsverða snjókomu norðan- og austanlands, einkum fyrri part dags. Hiti kringum frostmark, en mildara með suðurströndinni.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðvestan- og vestanátt og dálitla snjókomu eða él, en úrkomulítið austan- og suðaustantil. Heldur kólnandi.
Spá gerð: 24.03.2026 08:41. Gildir til: 31.03.2026 12:00.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.