Flugfélagið Ernir hefur bætt við aukaferðum til Eyja á föstudaginn en alls eru ferðirnar orðnar fjórar og ekki útilokað að enn verði bætt við. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að lausum sætum fari ört fækkandi og er fólk hvatt til að bóka sem fyrst á heimasíðu félagsins, www.ernir.is.