Elliði Snær í liði umferðarinnar í þýsku deildinni

Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handbolta. Elliði átti mjög góðan leik með liði sínu VfL Gummersbach þegar þeir sigruðu SG-Flensburg-Handewitt á þriðjudagskvöldið. Gummersbach sigraði Flensburg 33-26 og skoraði Elliði átta mörk úr 11 skotum. Þetta var í fyrsta skipti sem Eyjamaðurinn er valinn í úrvalslið umferðarinnar, en […]

Morgan Goði stal senunni í sigri ÍBV á Aftureldingu

Karlalið ÍBV í handbolta sigraði Aftureldingu með þriggja marka mun, 32-29, í 18. umferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Eyjamenn voru með undirtökin strax frá upphafi leiks og voru komnir með fjögurra marka forystu eftir tíu mínútur, 8-4. Munurinn á liðunum var þrjú til fimm mörk út hálfleikinn og leiddu Eyjamenn í hálfleik, […]

Tómas Bent með sigurmark Hearts

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var hetja Hearts í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið í gríðarlega mikilvægum sigri gegn Hibernian, í Skosku úrvalsdeildinni í fótbolta.  Tómas byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á þegar um 15 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Aðeins 12 mínútum síðar var Tómas búinn að skora sigurmark leiksins. Harry Milne […]

Alexandra Ósk framlengir við ÍBV

Handboltakonan Alexandra Ósk Viktorsdóttir hefur framlengt samning sinn við ÍBV og mun leika með liðinu út tímabilið 2027/2028. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag. Í tilkynningu ÍBV segir ,,Alexandra er með þeim efnilegustu leikmönnum félagsins og hefur verið fastur partur af yngri landsliðum Íslands í handbolta, þar sem hún hefur tekið þátt […]

Dramatískur sigur ÍBV á Haukum

Karlalið ÍBV vann dramatískan sigur á Haukum í 17. umferð Olís deildar karla á Ásvöllum í dag.  Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Eyjamenn náðu tveggja marka forystu eftir átta mínútna leik. Haukar jöfnuðu leikinn í 6-6 en það sem eftir lifði hálfleiks voru Eyjamenn með forystuna. Mest náðu þeir þriggja marka forskoti, […]

Stórsigur ÍBV á Akureyri

Kvennalið ÍBV í handbolta gerði góða ferð á Akureyri í dag þegar þær unnu stórsigur á KA/Þór í 16. umferð Olís deildar kvenna. Leikurinn var jafn framan af og eftir stundarfjórðung var staðan 8-8. Eyjakonur gáfu í og fimm mínútur fyrir hálfleiksflautið voru þær komnar með sex marka forystu, 11-17. Staðan í hálfleik 11-18. Eyjakonur […]

Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV

Bæði karla- og kvennalið ÍBV í fótbolta voru í eldlínunni í dag í Lengjubikarnum. Karlaliðið spilaði gegn Leikni á Hásteinsvelli. Leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna. Viggó Valgeirsson, Hermann Þór Ragnarsson og Mattias Edeland skoruðu mörk ÍBV.  Kvennaliðið leikur í A-deild og spilaði gegn Tindastól í Akraneshöllinni. Leiknum lauk með 16-0 stórsigri ÍBV. Mörk Eyjakvenna […]

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen

2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25

Handboltamaðurinn og Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson hefur framlengt samningi sínum við þýska B-deildarliðið HSG Nordhorn-Lingen. Samningurinn gildir til sumarsins 2027. Félagið greindi frá tíðindunum á heimasíðu sinni fyrr í dag. Elmar er 20 ára gamall leikstjórnandi sem gekk í raðir Nordhorn-Lingen frá ÍBV þar síðasta sumar. Hann hefur skorað 53 mörk á þessu tímabili. Í tilkynningu […]

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin

Handboltamaðurinn Róbert Sigurðsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV og mun leika með félaginu út tímabilið 2027/2028. Félagið greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum. Í tilkynningu ÍBV segir ,,Róbert hefur verið stór hluti af félaginu í gegnum árin. Með baráttu anda, vinnusemi og sterka tengingu við Eyjar heldur hann áfram að leggja sitt af mörkum […]

Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum

Karlalið ÍBV tók á móti Selfyssingum í 16. umferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með stórsigri heimamanna, 40-28. ÍBV náði forystunni strax í upphafi leiks og eftir stundarfjórðung voru Eyjamenn komnir með sex marka forystu. Staðan í hálfleik, 18-11. Eyjamenn héldu sama dampi í síðari hálfleik og Selfyssingar sáu í raun […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.