Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Alexandra Ósk Viktorsdóttir í leik með ÍBV í vetur. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Handboltakonan Alexandra Ósk Viktorsdóttir hefur framlengt samning sinn við ÍBV og mun leika með liðinu út tímabilið 2027/2028. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.

Í tilkynningu ÍBV segir ,,Alexandra er með þeim efnilegustu leikmönnum félagsins og hefur verið fastur partur af yngri landsliðum Íslands í handbolta, þar sem hún hefur tekið þátt í verkefnum með u-16, u-18 og u-20 ára landsliðum. Hún sameinar metnað, vinnusemi og mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur og er mikilvægur hluti af framtíð ÍBV”.

Alexandra er 18 ára gömul og leikur í hægra horninu. Hún hefur skorað 66 mörk í 16 leikjum með ÍBV í Olís deildinni í vetur.

 

Nýjustu fréttir

50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti
Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.