Stórsigur ÍBV á Akureyri
Sandra Erlingsdóttir skoraði átta mörk fyrir ÍBV. Mynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Kvennalið ÍBV í handbolta gerði góða ferð á Akureyri í dag þegar þær unnu stórsigur á KA/Þór í 16. umferð Olís deildar kvenna. Leikurinn var jafn framan af og eftir stundarfjórðung var staðan 8-8. Eyjakonur gáfu í og fimm mínútur fyrir hálfleiksflautið voru þær komnar með sex marka forystu, 11-17. Staðan í hálfleik 11-18.

Eyjakonur héldu sama dampi í síðari hálfleik og voru komnar með 11 marka forystu á upphafs mínútunum. KA/Þór náðu að minnka muninn niður í sjö mörk en Eyjakonur unnu að lokum öruggan tíu marka sigur. Lokatölur 22-32.

Eftir leikinn eru Eyjakonur enn í 2. sæti deildarinnar með 26 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Vals. KA/Þór er í 6. sæti með 13 stig.

Sandra Erlingsdóttir var markahæst í leiknum með 8 mörk úr 8 skotum. Amalia Frøland varði 12 skot í marki ÍBV og Ólöf Maren Bjarnadóttir 3.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 8 mörk, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 5, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Birna María Unnarsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Birna Dögg Egilsdóttir 2, Amelía dís Einarsdóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.

Næsti leikur ÍBV er heimaleikur gegn Stjörnunni, laugardaginn 14. febrúar kl. 14:00.

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.