Dramatískur sigur ÍBV á Haukum

Karlalið ÍBV vann dramatískan sigur á Haukum í 17. umferð Olís deildar karla á Ásvöllum í dag.  Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en Eyjamenn náðu tveggja marka forystu eftir átta mínútna leik. Haukar jöfnuðu leikinn í 6-6 en það sem eftir lifði hálfleiks voru Eyjamenn með forystuna. Mest náðu þeir þriggja marka forskoti, […]

Stórsigur ÍBV á Akureyri

Kvennalið ÍBV í handbolta gerði góða ferð á Akureyri í dag þegar þær unnu stórsigur á KA/Þór í 16. umferð Olís deildar kvenna. Leikurinn var jafn framan af og eftir stundarfjórðung var staðan 8-8. Eyjakonur gáfu í og fimm mínútur fyrir hálfleiksflautið voru þær komnar með sex marka forystu, 11-17. Staðan í hálfleik 11-18. Eyjakonur […]

Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV

Bæði karla- og kvennalið ÍBV í fótbolta voru í eldlínunni í dag í Lengjubikarnum. Karlaliðið spilaði gegn Leikni á Hásteinsvelli. Leiknum lauk með 3-1 sigri heimamanna. Viggó Valgeirsson, Hermann Þór Ragnarsson og Mattias Edeland skoruðu mörk ÍBV.  Kvennaliðið leikur í A-deild og spilaði gegn Tindastól í Akraneshöllinni. Leiknum lauk með 16-0 stórsigri ÍBV. Mörk Eyjakvenna […]

Bongóblíða í Eyjum

default

Það er sannkallað blíðuveður á þessum áttunda degi febrúarmánaðar. Einungis mældust 6m/s á Stórhöfða á fjórtánda tímanum í dag. Þá voru 2 m/s í Vestmannaeyjabæ og 4 stiga hiti. Heldur óvenjuleg staða um hávetur. Ef litið er á spá Veðurstofunnar fyrir Suðurland þá segir: Norðaustan 8-13 á morgun, skýjað með köflum og líkur á stöku […]

Siglt á flóði til Landeyjahafnar

herjolfur_lan_062020

Herjólfur getur nú siglt á flóði og við góðar aðstæður til Landeyjahafnar. Í tilkynningu frá skipafélaginu segir að ferjan sigli til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag samkvæmt eftirfarandi áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 19:30 (Áður ferð kl. 16:00) og 21:30. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 20.30 (Áður ferð kl. 19:45) og kl. 22:30. Á morgun, mánudag siglir […]

Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”

Nýtt ár virðist fyrir marga marka ákveðin kaflaskil og gefa tækifæri til að líta yfir heilsu, venjur og daglega rútínu. Margir setja sér ný markmið um aukna hreyfingu, betri líðan og heilbrigðari lífsstíl. En hvað er raunhæft, hvað er skynsamlegt og hvernig forðumst við að fara of geyst af stað?   Við ræddum við Hildi Sólveigu […]

Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið

Thelma Björk Gísladóttir, aðstoðarskólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, flutti hátíðarræðu við afhendingu Fréttapýramídanna í Eldheimum. Þar lagði hún áherslu á mikilvægi þess að staldra við, sýna þakklæti og gera sýnileg þau framlög sem styrkja samfélagið til lengri tíma.  Ræðu sína hóf Thelma á orðinu „takk“ og minnti á að viðurkenning og þakklæti skipti máli, bæði fyrir […]

Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt samhljóða að setja 2. og 3. hæð fasteignarinnar að Ægisgötu 2 í söluferli. Á fundi ráðsins fór Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs yfir verðmat sem unnið var fyrir eignina. Húsnæðisnefnd sveitarfélagsins hafði áður lagt til að þessir hlutar fasteignarinnar yrðu seldir. Fram kemur í fundargerð að skila þurfi inn tilboðum […]

Eyjaliðin í eldlínunni í dag

Handbolti (43)

Áfram heldur keppnin í Olísdeildunum í handbolta í dag þegar bæði lið ÍBV verða í eldlínunni. Karlalið ÍBV sækir Hauka heim í toppslag á meðan kvennaliðið heldur norður til Akureyrar þar sem KA/Þór bíður. Erfiður útileikur hjá körlunum Karlalið ÍBV situr í sjötta sæti Olísdeildarinnar með 19 stig eftir 16 leiki og hefur verið á […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.