Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Ægisgata 2. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt samhljóða að setja 2. og 3. hæð fasteignarinnar að Ægisgötu 2 í söluferli. Á fundi ráðsins fór Brynjar Ólafsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs yfir verðmat sem unnið var fyrir eignina. Húsnæðisnefnd sveitarfélagsins hafði áður lagt til að þessir hlutar fasteignarinnar yrðu seldir.

Fram kemur í fundargerð að skila þurfi inn tilboðum eigi síðar en 20. mars. Afstaða til tilboðanna verður tekin á fundi bæjarráðs þann 25. mars. Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs hefur verið falið að hafa umsjón með framgangi málsins.

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.