Elliði Snær í liði umferðarinnar í þýsku deildinni
Elliði Snær Viðarsson. Mynd/HSÍ

Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handbolta. Elliði átti mjög góðan leik með liði sínu VfL Gummersbach þegar þeir sigruðu SG-Flensburg-Handewitt á þriðjudagskvöldið.

Gummersbach sigraði Flensburg 33-26 og skoraði Elliði átta mörk úr 11 skotum. Þetta var í fyrsta skipti sem Eyjamaðurinn er valinn í úrvalslið umferðarinnar, en deildin sjálf stendur fyrir valinu. Elliði var markahæstur í leiknum og fékk samkvæmt HPI-stuðlinum 90 stig.

Eftir 20 leiki situr Gummersbach í 6. sæti þýsku deildarinnar með 27 stig.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.