Bæjarráð hafnar með öllu bæði forsendum, aðferðarfræði og niðurstöðum skýrslunnar
Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja sl. miðvikudag, lá fyrir skýrsla Innanríkisráðuneytisins “Félagshagfræðileg greining á framtíð áætlunarflugs innanlands�?� og minnisblað því tengt.
Bæjarráð gerir alvarlegar athugasemdir við skýrslu Innanríkisráðuneytisins.
Meðal helstu athugasemda eru:
Kostnaðar- og ábatagreining er unnin með forritinu Teresa sem byggir á Monte Carlo stefnuhermun. Gefnar forsendur gera ráð fyrir samdrætti í flugi til Vestmannaeyja upp á 3 til 7%. �?essar og aðrar hæpnar forsendur leiða til þess að kostnaðar og ábatagreining kemur í heildina verr út fyrir Vestmannaeyjar.
Skýrsluhöfundar virðast gefa sér að samgöngumál við Vestmannaeyjar séu komnar í endanlegt og ásættanlegt horf. Slíkt viðhorf lýsir eingöngu litlum skilningi á samgöngum við Vestmannaeyjar og dregur eitt og sér mjög úr trúverðugleika skýrslunnar.
Ýmislegt sem lítur að Vestmannaeyjum virðist hroðvirknislega unnið og til þess fallið að draga úr trúverðugleika og auka enn gruninn um að lítið mark sé takandi á skýrslunni. Má í því samhengi benda á að skýrsluhöfundar komast að þeirri furðulegu niðurstöðu að “Áætlunarbíll og ferja” sé einhverja hluta vegna styttri ferðamáti tímalega séð en “Akstur og ferja”. Á sama máta vekur athygli að Vestmannaeyjaflugvöllur er 4% allra áfangastaða en 2% allra brottfarastaða.
Lítið tillit virðist tekið til þess hversu flug er mikilvægt fyrir atvinnulífið í Vestmannaeyjum og telja um 50% fyrirtækja í Eyjum sig verða fyrir miklum neikvæðum áhrifum ef flug dregst saman.
Lítið er gert úr mikilvægi flugs fyrir smærri hagsmunahóp (td. börn sem eru í deildri forsjá og þurfa ítrekað að ferðast til og frá foreldri sem hefur búsetu annarstaðar) og etv. langt umfram áhrif þess annarstaðar. Í því samhengi má nefna að fleiri fljúga oftar en 10 sinnum en þeir sem fljúga um 6 til 10 sinnum.
Í samantekt er lítið gert úr mikilvægi flugs fyrir almenn búsetugæði í Vestmannaeyjum. Slíkt er ekki í neinum takti við samfélagslega þörf í Vestmannaeyjum og bendir til þess að höfundar hafi litla þekkingu af grunngerð Eyjasamfélagsins.
Of lítið er gert úr þeirri staðreynd að flugsamgöngur eru oft hluti af nauðsynlegri grunnþjónustu sem ríkið hefur valið að byggja upp í Reykjavík. �?annig hafa 78% þeirra sem notað hafa flug frá Eyjum í einhverri flugerða sinna farið til að sækja læknisþjónustu.
Bæjarráð hafnar með öllu bæði forsendum, aðferðarfræði og niðurstöðum skýrslunnar og varar Innanríkisráðherra og aðra sem um málið fjalla við því að byggja ákvarðanir á henni.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.