Stefnt er að því að Herjólfur fari í slipp þann 7. september nk. og gert ráð fyrir að hann verði í burtu í tvær vikur. Reiknað er með að Breiðafjarðarferjan Baldur leysi Herjólf af þennan tíma. Þær upplýsingar fengust hjá Kristínu Sigurbjörnsdóttur hjá Vegagerðinni að beðið væri eftir staðfestingu frá samgönguráðuneyti um að Baldur fengi leyfi til að sigla á leiðinni milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Guðmundur Pedersen, rekstarstjóri Herjólfs, sagðist vonast til þess að Herjólfur yrði kominn í áætlun um 20. september, ef allt gengur upp.