„Það var ætlunin að koma rólega í þennan leik enda hafa Fylkismenn skorað átta mörk á fyrstu fimm eða sex mínútum leikja sinna. Tölfræðin segir manni að fara varlega í leiki á móti Fylki,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, eftir sigurinn í Árbænum í gær þar sem hans menn lentu undir og voru manni færri í 60 mínútur en sigruðu samt 2:1.