Það er mikil stemmning í fótboltanum í Eyjum um þessar mundir, sérstaklega hjá karlaliði ÍBV sem er efst í Pepsídeildinni. Oft fylgir góðu gengi, aukin stemmning en í síðustu tveimur útileikjum ÍBV, hafa stuðningsmenn liðsins verið fleiri hundruð talsins og stemmningin eftir því. Jón Óskar Þórhallsson er einn þeirra sem mætir á alla leiki og hann sendi ritstjórn Eyjafrétta myndband af fagnaðarlátunum þegar James Hurst skoraði sigurmark ÍBV gegn Fylki. Myndbandið má sjá þegar smellt er á meira.