Bjartmar Guðlaugsson heldur tónleika í Alþýðuhúsinu Vestmannaeyjum laugardaginn 6. desember. Bjartmar lítur yfir liðnar stundir og skoðar á sinn einstaka hátt tengsl tónlistar og ljóða sinna við tímann og bæinn, þaðan sem efniviðurinn í suma af hans þekktustu textum eru. Gamlir og dyggir meðreiðarsveinar hans munu skjóta upp kollinum, Fúll á móti, Sumarliði, Hippinn og fleiri. En Bjartmar mun ekki eingöngu dvelja við hið liðna því hann mun líka kynna efni af nýrri hljómplötu sem væntanleg er með vorinu.
Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og standa í tvær klukkustundir (að lágmarki) með einu 15 mínútna hléi. Miðaverð er 2.500 kr. og eru miðar seldir við innganginn. Miðasalan hefst kl. 21:00.