Samkvæmt venju reið Björgvin Eyjólfsson, aðstoðarskólameistari, á vaðið með stutt yfirlit um starf skólans á liðinni önn þegar útskrift FÍV fór fram 16. desember sl. Fór hann um víðan völl og ræddi meðal annars mannabreytingar, samstarfið við íþróttafélög bæjarins og ýmsar tölulega upplýsingar.
Af breytingu mannahalds er það að segja að til liðs við okkur kom Júlía Gristsenko, skiptikennari í ensku frá Eistlandi og njótum við starfskrafta hennar þetta skólaár í fjarveru Arndísar Maríu Kjartansdóttur sem fór í námsleyfi. Einnig bættist við Birita í Dali sem kennir lífsleikni og stafræna hönnun. �?lafur Friðriksson kenndi hönnun skipa og Hildur Vattnes tók að sér lífeðlisfræði á sjúkraliðabraut. Bæði voru þau í stundakennslu. Aðrar breytingar urðu ekki á starfsliði skólans.
Kennt var nokkurn veginn sleitulaust út ágúst og allan september til námsmatsdaga hinna fyrri sem haldnir voru 12.-16 október. Eftir þá var gefið út miðannarmat. Seinna úthaldið var nokkuð heillegt og kennt var til 7. desember, þá tók við seinni námsmatstörnin 8-13 desember. Og nú erum við hér stödd til að ljúka starfi annarinnar.
Minna svigrúm fyrir vinnu og aðrar athafnir utan skólans
Við styttingu náms til stúdentsprófs er augljóst að mikilvægi þess hefur aukist að nemendur mæti vel í skólann og sinni náminu af kostgæfni jafnt og þétt alla önnina. Minna svigrúm er því fyrir vinnu og aðrar athafnir utan skólans á starfstíma hans.
Skólastarfið og námið er vinna þar sem launin eru menntunin og einingarnar sem skilar okkur síðan betri atvinnumöguleikum og lífsfyllingu í framtíðinni.
Skólinn hélt áfram samstarfi við ÍBV íþróttafélag um akademíu í knattspyrnu og handknattleik þar sem 33 nemendur tóku þátt. Nú er Golfklúbburinn einnig með í þessu samstarfi í annað skipti. 5 nemendur voru í golfakademíunni og verða vonandi enn fleiri í framtíðinni.
15 sjúkraliðar héldu áfram í fjarnámi við skólann undir stjórn Guðnýar Bjarnadóttur og gengur það mjög vel. Skólinn er einnig þátttakandi í fjarmenntaskólanum sem er samstarfsverkefni 13 framhaldsskóla á landsbyggðinni. �?að samstarf gefur okkur aukna möguleika á fjölbreytni í námi og heldur vonandi áfram að þróast á jákvæðan hátt.
Við héldum áfram þátttöku í tveggja ára NORDPLUS verkefninu þar sem fjallað er um nýjungar og skipulagningu á sviði ferðaþjónustu. Samstarfsskólarnir eru frá Finnlandi Lettlandi og Svíþjóð. Fulltrúar nemenda og kennara okkar heimsóttu sænska skólann sem staðsettur er í Malmö nú í október. Verkefninu lýkur síðan í janúar með heimsókn allra skólanna til Lettlands.
Advanía, fyrirtæki sem þjónustar tölvukerfið okkar hélt námskeið í kennslukerfi INNU fyrir kennara og var það haldið í október. Vanda Sigurgeirsdóttir hélt frábæran fyrirlestur um forvarnir gegn einelti ætlaðan forráðamönnum og starfsfólki skólans. Áætlað er að hún komi aftur á vorönninni með námskeið fyrir kennara. Björg �?orgeirsdóttir kom frá Kvennaskólanum og fór yfir ýmis hagnýt atriði varðandi kennslu í áföngum á þriðja þrepi
Aldrei fleiri í göngu yfir Fimmvörðuháls
Sögulegum áfanga var svo náð er hópur nemenda gekk yfir Fimmvörðuháls síðustu vikuna í ágúst ásamt íþróttakennurum og nokkrum vöskum sjálfboðaliðum. Hópurinn taldi 39 manns og hefur aldrei verið jafn fjölmennur. �?etta er í fjórtánda skipti sem nemendur fara þessa ferð sem hluta af íþróttaáföngum skólans.
Ýmsir fræðslufundir hafa verið haldnir fyrir nemendur á önninni og má þar nefna hefðbundna heimsókn Ástráðs félags læknanema sem var með kynfræðslu fyrir nemendur. Hugrún, félag háskólanema á heilbrigðis og hugvísindasviði gekkst einnig fyrir fræðslu um geðheilbrigði.
Af félagsstarfi nemenda er það að segja að haldið var nýnemaball í byrjun september. Einnig héldu nemendur ýmsar uppákomur og spilakvöld í samkomusal skólans og bíóið bauð uppá sérstaka miðnætursýningu. Með tilkomu þessa nýja hljóðkerfis sem við erum nú að nota í fyrsta skipti eykst möguleiki nemenda til félagsstarfs í skólanum og vonandi nýta þeir sér það.
Nemendafjöldi var svipaður á þessari haustönn og þeirri síðustu. Staðfestir það þær samfélagslegu breytingar sem landsbyggðin tekst nú á við þar sem ungu fólki fækkar með hverju árinu sem líður. Sem dæmi má taka að fyrstu árin mín í kennslu (ég byrjaði 1978) taldist lítill árgangur ef undir 100 nemendur voru í honum. Nú telst 70 manna árgangur stór en flestir eru milli 50 og 60. Svo eru menn hissa að ÍBV sé í vandræðum að manna yngri flokkana sína í handbolta og fótbolta og fólk heldur áfram að bera árangurinn saman við mun stærri bæjarfélög í örum vexti. Hversu raunhæft er það? En nóg af þessu.
Brottfall fer minnkandi
Námið hófu sem sagt 234 nemendur í mismörgum einingum. Rúmlega 95 % þessara eininga skiluðu sér til prófs. Einungis 6 nemendur hættu námi á önninni og meðal fallprósenta í öllum áföngum er rúmlega 5%. �?etta telst mjög gott miðað við fyrri ár og erum við að sjá áframhaldandi árangur af markvissri vinnu skólans gegn brottfalli.
Skapast hefur sú venja að veita nemendum með frábæra mætingu fría innritun á næstu önn og að þessu sinni bera tveir nemendur af og eru með 100% raunmætingu sem þýðir þeir hafa mætt í hvern einasta tíma á önninni. Geri aðrir betur. �?etta eru þeir: Árni Fannar Bæron Gerhardsson og Daníel Hreggviðsson.
�?essir nemendur fengu viðurkenningar við útskriftina
Viðurkenningar frá íþróttaakademíu ÍBV: Sandra Erlingsdóttir og Elliði Snær Viðarsson.
Viðurkenning fyrir mjög góðan árangur í þýsku frá �?ýska sendiráðinu. Bergþóra �?löf Björgvinsdóttir.
Fyrir mjög góðan árangur í raungreinum frá Háskólanum í Reykjavík. Bergþóra �?löf Björgvinsdóttir.
Fyrir góðan árangur á stúdentsprófi. �?órey Lúðvíksdóttir meðaleinkunn 8,01.
Fyrir mjög góðan árangur á stúdentsprófi. Bergþóra �?löf Björgvinsdóttir meðaleinkunn 9,08.