Björgun stefnir að því að endurnýja að hluta skipakost félagsins á næstu misserum, þetta kemur fram í frétt á heimasíðu fyrirtækisins. Björgun átti lægsta tilboðið í dýpkun við Landeyjahöfn sem var 620 milljónir. Núverandi verktaki, belgíska fyrirtækið Jan De Nul, bauð 1.179 milljónir. Björgun bauð núverandi skipa- og tækjabúnað félagsins til verksins sem henta við mismunandi aðstæður og á mismunandi dýpkunarsvæðum.
Annað hvort verður það gert með nýsmíði dæluskips eða fjárfestingu í notuðu skipi. Ljóst sé að ferlið muni taka töluverðan tíma.Eins og fram hefur komið í blaðinu hafa Vegagerðin og Björgun undirritað verksamning um dýpkun Landeyjahafnar næstu þrjú árin.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.