ÍBV vann í dag laglegan sigur á Breiðabliki í 2. umferð Pepsídeildar karla en liðin mættust á Hásteinsvelli. Leikurinn var mjög fjörugur og nokkur hiti í leikmönnum, sem þó var innan skynsamlegra marka. Alls urðu mörkin fimm talsins í leiknum og fimm sinnum í viðbót small boltinn í markstöngunum. Lokatölur urðu 4:1 fyrir ÍBV, sem skoraði síðustu tvö mörk leiksins í uppbótartíma.