Áfall fyrir ÍBV – Amalia Frøland með slitið krossband

Amalia Frøland markvörður kvennaliðs ÍBV í handbolta verður ekkert með í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitillinn gegn Val í úrslitakeppni Olís deildar kvenna. Amalia meiddist í undanúrslitaleik liðsins gegn Haukum í síðari framlengingu leiksins og var strax ljóst að um alvarleg meiðsli væri að ræða. Það hefur nú komið í ljós að hún er með slitið fremra […]

Meiri sandur í höfninni – dýpkun hefst í fyrramálið

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Ný dýptarmæling í Landeyjahöfn, sem lauk rétt í þessu, sýnir að töluverður sandur hefur safnast upp frá síðustu mælingu. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Það hefur safnast ansi mikið frá síðustu mælingu,“ segir Pétur. Þrátt fyrir það er stefnt að því að hefja dýpkun á ný á morgun. […]

Maí sól – Lag til ömmustelpurnar

„Á morgun, 1. maí kemur út fyrsta lagið af plötunni Sólarlagi á Spotify, væntanlega eftir miðnætti í nótt,“ segir Guðrún Erlingsdóttir sem stefnir á tónleika í Eldheimum á goslokum í sumar þar sem platan verður kynnt. „Lagið fjallar um ömmustelpuna mína, Bjarteyju Ósk sem verður 17 ára á morgun. Lagið var samið til hennar og […]

Styrkir veittir til fjölbreyttra verkefna

Í dag undirrituðu Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs og Hrefna Jónsdóttir, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs samninga við styrkþegar vegna verkefna sem hlutu styrk. Frá þessu er greint á vef Vestmannaeyjabæjar. Þar segir enn fremur að í mars síðastliðnum hafi bæjarráð Vestmannaeyja auglýst í tengslum við síðari úthlutun ársins á styrkjum vegna ,,Viltu hafa áhrif” eftir umsóknum. […]

Neyðarkall úr Eyjum

Vestmanneyingar eru seinþreyttir til vandræða, það þykir ekki gott að kvarta.  Nú er hins vegar komin upp staða varðandi samgöngur í Eyjum sem er óþolandi.  Þetta er eitthvað í ætt við að svelta mjólkurkúna, hugbúnaðarfyrirtæki að borga ekki símareikninginn eða útgerðarmann sem kaupir ekki olíu á skipin.  Vestmannaeyjar eru nefnilega einn af máttarstólpum Íslands í […]

Sigmundur Davíð með opinn fund

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins heldur opinn fund í Vestmannaeyjum í dag, fimmtudaginn 30.apríl. Fundurinn verður haldinn í Miðgarði, Strandvegi 51, klukkan 17. Sigmundur mun þar fara m.a yfir stöðuna í samgöngumálum Vestmannaeyja, auk annarra mála. Fundargestum gefst kostur á að spyrja Sigmund spurninga. Allir velkomnir, segir í tilkynningu frá Miðflokknum í Vestmannaeyjum. (meira…)

Hæsti styrkurinn til Eyja

Vestmannaeyjabær fær hæsta styrkinn úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í ár. Styrkurinn rennur til uppbyggingar á Eldfelli. Alls fara um 107 milljónir króna í gerð göngustíga og trappa sem tengjast listaverkinu Sjónarhorn flakkarans, með það að markmiði að bæta öryggi gesta og vernda viðkvæmt náttúruumhverfi. Úthlutunin er hluti af heildarpakka upp á nærri 490 milljónir króna til […]

Dýptarmæling í dag

Dýpi í Landeyjahöfn verður mælt síðdegis í dag og mun niðurstaðan ráða miklu um framhaldið, bæði hvað varðar dýpkun og siglingar. Þetta kemur fram í nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Miðað við ölduspá má reikna með að hægt verði að hefja dýpkun að nýju síðdegis á morgun,“ segir Pétur. Óvissa er […]

Eyjalistinn í sókn: Heimasíða og stefnuskrá líta dagsins ljós!

Það er mikill kraftur og eftirvænting í okkur hjá Eyjalistanum þessa dagana. Við fögnum því að opna í dag nýja og glæsilega heimasíðu okkar, Eyjalistinn.is, þar sem hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um listann okkar og framtíðarsýn. Samhliða opnuninni birtum við stefnuskrá okkar fyrir komandi kjörtímabil í heild sinni. Stefnuskráin okkar er afrakstur […]

Vinnandi hendur frá hafi til hátíðarborðs

Vetrarvertíðin er á lokametrunum og víða er handagangur í öskjunni – bæði á Íslandi og í Portúgal. Eyjafréttir endurbirta hér áhugaverða umfjöllun frá Vinnslustöðinni um hvernig vertíðin tengist áframhaldandi vinnslu og markaði erlendis, og hvernig störf fólks spanna þessa löngu leið frá hafi til hátíðarborðs. Frá Íslandsmiðum til Portúgals – vinnandi hendur tengja vertíð og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.