H verslun með pop up verslun í Eyjum
H verslun verður opin út september.
Annika Staff
Annika
Vignisdóttir

H verslun opnaði á dögunum svokallaða ,,pop-up“ verslun hér í Eyjum að Heiðarvegi 9B. Í versluninni er boðið upp á fjölbreytt úrval af íþróttavörum, þar á meðal fótboltafatnað og fótboltaskó, æfinga- og hlaupafatnað, hlaupaskó, sundfatnað og ÍBV-vörur.

Verslunin verður opin út september og er opnunartími er frá 10-18 á virkum dögum og frá 11-16 á laugardögum.

Birna Björnsdóttir, sem hefur haft umsjón með opnun verslunarinnar og er jafnframt verslunarstjóri H verslunar, segir ákvörunina um að opna verslun hér hafi verið tekna í ljósi skorts á íþróttafatnaði í Eyjum um nokkurt skeið.

Birna Björnsdóttir verslunarstjóri hjá H verslun.

„Við ætlum að vera hér út september, því það er klárlega þörf á því. Hugmyndin var því að vera hér yfir sumarið og fram yfir skólabyrjun.“

Viðtökurnar fram úr björtustu vonum

„Viðtökurnar hafa verið frábærar og við erum alveg í skýjunum með þetta allt saman. Vestmannaeyingar eru ótrúlegir! Við náðum að opna verslunina á aðeins sólarhring með mikilli hjálp frá Eyjafólki. Einhvern veginn voru allir tilbúnir að leggja okkur lið og við náðum að opna á afar stuttum tíma.

,,Miðað við þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið fórum við strax að velta því fyrir okkur hvort við værum komin til að vera,“ segir Birna og hlær.

Birna segir ljóst að mikil þörf hafi verið fyrir verslun sem þessa í Vestmannaeyjum. Viðtökurnar hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum og jákvæðum skilaboð hafi hreinlega rignt yfir þau.

Hlaup á vegum H-klúbbsins

Þá stendur einnig til að efna til 5 kílómetra hlaups á vegum H klúbbsins í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 1. júlí.

,,Hlaupið byrjar og endar við verslunina og byrjar kl 17. Eyjakonan og hlauparinn Minna Björk Ágústsdóttir mun sjá um að leiða hópinn. Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir og eftir hlaupið og allir þátttakendur fara í pott þar sem dregin verða út tvö gjafabréf að verðmæti 20.000 krónur í H verslun. Ekki er þörf á skráningu heldur er fólki einfaldlega boðið að mæta á staðinn.“ Meira um hlaupið hér.

Að lokum hvetur Birna alla til að kíkja í búðina, láta sjá sig í hlaupinu og þakkar um leið fyrir frábærar móttökur.

Nýjustu fréttir

H verslun með pop up verslun í Eyjum
Hafna ósk Terra um styttri opnunartíma
Mugison, saft í brúsa og pönsur á Skansinum
Grjóthrun við Friðarhöfn
Lægsta tilboð í svið á Vigtartorgi 10,6 milljónum yfir áætlun
Upplýsingaóreiða formanns utanríkismálanefndar
Rauðáta gæti orðið ný atvinnugrein
Lögreglan minnir á mikilvægi umferðaröryggis á Orkumótinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.