Hafsbotnsmælingar vegna Eyjaganga hefjast í næstu viku
Landmælingaskipið Baldur kemur til Vestmannaeyja um helgina og mun sinna hafsbotnsmælingum í Eyjasundi næstu tvær vikur. Mælingarnar eru mikilvægur liður í rannsóknum vegna mögulegra jarðganga milli lands og Eyja. Ljósmynd: Landhelgisgæslan/lhg.is

Nýr áfangi í rannsóknum vegna fyrirhugaðra jarðganga milli lands og Vestmannaeyja hefst í næstu viku þegar hafsbotnsmælingar fara af stað í Eyjasundi.

Mælingarnar eru unnar á vegum Eyjaganga í samstarfi við Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) og Landhelgisgæslu Íslands og marka upphaf þriðja þrepsins í þrepaskiptum rannsóknum á svæðinu.

Fram kemur á vef Eyjaganga að áætlað sé að mælingarnar hefjist 1. júlí og standi yfir í allt að tvær vikur.

Landmælingaskipið Baldur kemur til Eyja

Undirbúningur verkefnisins er á lokastigi og er sjómælingaskipið Baldur, í eigu Landhelgisgæslu Íslands, væntanlegt til Vestmannaeyja á sunnudagskvöld.

Um borð verða tveir erlendir sérfræðingar frá hollenska fyrirtækinu Geo Marine Survey Systems sem munu vinna með sérfræðingum ÍSOR við framkvæmd mælinganna og gagnaöflun.

Kortleggja jarðlög undir hafsbotni

Um er að ræða svokallaðar hljóðendurvarpsmælingar sem notaðar eru til að kortleggja jarðlög undir hafsbotninum.

Með því að senda hljóðbylgjur niður í hafsbotninn og mæla bergmálið sem endurkastast er hægt að fá nákvæma mynd af þykkt og gerð setlaga og bergs. Slíkar upplýsingar eru lykilatriði við hönnun og skipulag mögulegra neðansjávarganga.

Fram kemur í tilkynningu Eyjaganga að niðurstöður mælinganna muni veita mikilvæga innsýn í jarðfræði svæðisins milli lands og Eyja og nýtast við áframhaldandi fýsileikamat verkefnisins.

Nýjustu fréttir

Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.