Íslendingur vann tæpar 65 milljónir í EuroJackpot
Íslenskur miðaeigandi vann tæpar 65 milljónir króna í EuroJackpot í útdrætti kvöldsins.

Heppinn Íslendingur var með 3. vinning í EuroJackpot í útdrætti kvöldsins og hlýtur tæpar 65 milljónir króna í vinning.

Þrír miðaeigendur voru með réttan leik fyrir 3. vinning og skipta þeir vinningnum á milli sín. Auk íslenska miðans voru hinir tveir keyptir í Þýskalandi.

Stærsti vinningurinn gekk einnig til Þýskalands, þar sem einn miðaeigandi var einn með allar réttar tölur og fær rúmlega 12,5 milljarða króna í sinn hlut.

Fimm miðaeigendur deildu með sér 2. vinningi og fær hver þeirra um 69 milljónir króna. Þrír þeirra eru í Þýskalandi, einn í Svíþjóð og einn í Eistlandi.

Jóker fór á Ártúnshöfða

Einn heppinn spilari var með 1. vinning í Jóker og hlýtur 2,5 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur á N1 við Ártúnshöfða.

Einn miðaeigandi var með 2. vinning í Jóker að upphæð 125 þúsund krónur. Sá miði var keyptur á lotto.is, segir í tilkynningu frá Íslenkri Getspá.

Nýjustu fréttir

Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Evrópuhreyfingin: 105.339 Íslendingar sögðu já
Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.