Rúmlega hundrað konur á Mey kvennaráðstefnu

Mey kvennaráðstefnan fór fram í Sagnheimum síðastliðinn laugardag við góðar undirtektir. En rúmlega hundrað konur komu saman og nutu dagsins í góðum félagsskap. Markmið Mey er að sameina konur, styrkja, gleðja og valdefla og er þetta í þriðja sinn sem ráðstefnan er haldin. Dagskráin var að vanda fjölbreytt og skemmtileg, en þrír fyrirlesarar stigu á […]

Spurt og svarað: Kjartan Vídó frá Sjálfstæðisflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins. Nafn: Kjartan Vídó Ólafsson Aldur: 47 ára Fjölskylda: Flutti aftur til Eyja fyrir rúmu ári og er í sambúð með Guðrúnu Lilju Friðgeirsdóttur, leikskólakennara á Sóla. […]

“Selfies” eru ekki hagsmunagæsla

Johann Ingi Ads IMG 4231 (1)

Meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja hefur árum saman lýst yfir eigin ágæti í hagsmunagæslu. Af einhverri ástæðu hefur minnihlutinn tekið undir. Raunveruleikinn segir aðra sögu. Þá vaknar einföld spurning: Hvaða hagsmuni er í raun verið að verja? Innantómt hjal Myndir og yfirlýsingar um fundi með ráðherrum og „árangur“ í samgöngumálum eru ekkert annað en innantómt hjal. Raunveruleikinn […]

ÍBV – Haukar: Einvígið heldur áfram

ÍBV og Haukar mætast í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta. Staðan í einvíginu er jöfn, 1–1, og því ljóst að mikið er undir þegar flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:30. Eyjakonur fara inn í leikinn fullar sjálfstrausts eftir sterkan sigur í síðasta leik liðanna, þar sem þær […]

Ágæt veiði hjá Eyjunum

Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE hafa fiskað ágætlega að undanförnu. Þetta kemur fram í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Bergey landaði fullfermi í Þorlákshöfn á sunnudag, Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Grindavík í gær. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum og voru þeir allir ágætlega sáttir við veiðina. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að túrinn […]

Rafmagn fór af allri eyjunni: „Greitt fyrir öryggi sem hélt ekki“

Rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjum að kvöldi 6. apríl síðastliðinn þegar yfirspennuvörn í dreifikerfi sló út og tók þar með rafmagn af allri eyjunni. Þetta gerðist þrátt fyrir að flutningskerfi Landsnets héldi, samkvæmt upplýsingum þaðan. Sjá einnig: Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært Truflun vegna eldinga en afhending hélt Samkvæmt svörum Landsnets varð truflun í […]

Börn í Eyjum mega þola löng ferðalög, lítinn svefn og óvissu

Núna eru liðnir 9 dagar síðan ég sendi hugleiðingar mínar frá Eyjum á Eyjólf innviðaráðherra og Kristrúnu forsætisráðherra. Síðan bættist Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, við um helgina. Pabbi spurði mig í gær hver væri að hjálpa mér að skrifa þessa pistla? Ég var nú smá hissa á þessari spurningu. Ég hef nú gefið út […]

Dýpkun mistókst í morgun – reynt aftur í kvöld

alfsnes_vegagerdin_24_is

Ekki tókst að hefja dýpkun í Landeyjahöfn á flóðinu í morgun þar sem aðstæður reyndust óhagstæðar. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar. „Það gekk ekki að dýpka á flóðinu í morgun, ölduhæð og öldulengd hömluðu því og eins brot í hafnarmynninu,“ segir Pétur. Gert er ráð fyrir að ný […]

Laxey og AKVA group semja um nýja seiðastöð

Laxey hefur samið við AKVA group um hönnun og afhendingu nýrrar seiðastöðvar í Vestmannaeyjum, svonefndrar Seiðastöðvar II. Verkefnið markar næsta skref í uppbyggingu félagsins á landeldi, að því er segir í tilkynningu á vefsíðu Laxeyjar. Tilkynninguna má lesa hér að neðan. Laxey hefur gert samning við AKVA group um hönnun og afhendingu nýrrar seiðastöðvar í […]

Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka

Á morgun, miðvikudaginn 22. apríl, mætast ÍBV og Haukar í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna. Staðan í einvíginu er jöfn, 1–1, og því ljóst að mikið er undir þegar flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 18:30. Undirbúningur ÍBV-liðsins er í fullum gangi en Halldór B. Halldórsson kíkti á æfingu liðsins í gær […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.