Það hefur verið nóg um að vera hjá Íslenskri getspá að undanförnu og nú hafa tveir skemmtilegir vinningshafar með stóra potta og áhugaverðar sögur að baki bæst í hóp heppinna milljónamæringa.
Annar þeirra er rúmlega fimmtug amma sem hefur verið með Lottótölurnar sínar í áskrift um árabil. Tölurnar eru henni kærar, enda byggja þær á afmælisdögum barna hennar og barnabarna, og hefur hún alltaf tengt þær við gæfu og góða tíma. Sú trú reyndist vel þegar í ljós kom að hún var með allar tölurnar réttar og hafði þannig unnið rúmar 11,6 milljónir króna. Hún hafði ekki hugmynd um vinninginn þegar góðu fréttirnar bárust með símtali sem kom skemmtilega á óvart.
Hinn hlaut þriðja vinning í Vikinglotto, að upphæð 9,8 milljónir króna. Sá er rúmlega sjötugur og keypti miðann sinn í Lottóappinu. Hann viðurkenndi fúslega að vera lítið fyrir tölvur og tækni en sagði appið hafa komið sér á óvart og var enga stund að læra á það. Vinningshafinn missti konuna sína á síðasta ári og þegar hann keypti miðann bað hann hana í hálfkæringi um að senda sér nú Lottóvinning. „Og svo sannarlega gerði hún það í þetta sinn, þessi elska,“ sagði hann og brosti breitt.
Starfsfólk Íslenskrar getspár hefur það skemmtilega hlutverk að slá reglulega á þráðinn til nýrra vinningshafa með góð tíðindi. Hvort sem það eru langþráðar lukkutölur eða óvæntir vinningar þá virðist heppnin vera með Íslendingum þessa dagana og gleðin alltumlykjandi. Allir vinningshöfum fá innilegar hamingjuóskir og allir spilarar þakkir um leið fyrir veittan stuðning. Hann skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af öllum þeim ágóða sem Lottó gefur af sér, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.